Wednesday, July 25, 2012
Band-trefill
Monday, July 23, 2012
Breyttu til með stenslum
Það er svo margt hægt að gera með stenslum. Það er hægt að lífga upp veggi, myndaramma, kommóður, borð, skápa eða hvað eina sem manni dettur í hug með stenslum.
Hægt er að leita eftir stenslamyndum á netinu undir orðinu stencils til að finna sér myndir til að vinna með. Einnig er hægt að leita eftir sérstökum stenslum, t.d. blóma stenslum undir flower stencils o.s.frv. Þannig að ef manni langar að stensla er hægt að gera það á nokkuð ódýran hátt ... þetta er sérstaklega gaman ef maður er mikið fyrir fínvinnu og dund líkt og ég er.
Ég sjálf fór þessa leið nú um helgina og fann mér mynd til að nota. Endilega kíktu á ferlið ...
Hægt er að leita eftir stenslamyndum á netinu undir orðinu stencils til að finna sér myndir til að vinna með. Einnig er hægt að leita eftir sérstökum stenslum, t.d. blóma stenslum undir flower stencils o.s.frv. Þannig að ef manni langar að stensla er hægt að gera það á nokkuð ódýran hátt ... þetta er sérstaklega gaman ef maður er mikið fyrir fínvinnu og dund líkt og ég er.
Ég sjálf fór þessa leið nú um helgina og fann mér mynd til að nota. Endilega kíktu á ferlið ...
Saturday, July 21, 2012
Einföld og falleg armbönd
Rakst á þessi fallegu en einföldu armbönd sem hægt er að búa til á síðunni Honestly...WTF. Eru líka svo sumarleg. Um að gera að gera svona til að klára sumarið með.
Leiðbeiningarnar má finna HÉR.
Leiðbeiningarnar má finna HÉR.
Monday, July 16, 2012
Lausnin á snúruvandanum fundin!
Hver kannast ekki við það að vera að reyna að finna réttu snúruna fyrir tækið sem þarfnast hleðslu. Snúrurnar eru allar saman í kuðli og greiða þarf úr flækjunni.
Hér er hins vegar búið að finna lausn á vandanum sem mér finnst einstaklega sniðug og flott. Hugmyndin kemur af Better Homes and Gardens .
Hér er hins vegar búið að finna lausn á vandanum sem mér finnst einstaklega sniðug og flott. Hugmyndin kemur af Better Homes and Gardens .
Friday, July 13, 2012
Æðislegar skálar
Leiðbeiningar um framkvæmd má finna HÉR.
Wednesday, July 11, 2012
Myrkvunargardínur fyrir lítið
Þegar næturnar verða bjartar finnst mörgum nauðsynlegt að geta dimmt herbergið sitt. Við hér á heimilinu erum einmitt þeirrar skoðunar og skunduðum því í rúmfatalagerinn til að fjárfesta í myrkvunargardínum. Þegar þar var komið fannst okkur verðið á þeim heldur hátt og ákváðum að við myndum redda okkur öðruvísi. Eftir nokkra daga kom hugmyndasnjalli maðurinn minn með hugmynd að lausn. Sú lausn var ódýr og kostaði okkur ekki nema 2000 kr. En ódýrasta myrkvunargardínan sem við fundum sem passaði í gluggann var á 5400 kr.
Monday, July 9, 2012
Hollt túnfiskssalat
Túnfiskssalat hefur ávallt verið í miklu uppáhaldi hjá húsbónda heimilisins en gallinn við það er þetta majones, sem er víst hálfgert kransæðarkítti. Um helgina þurfti svo Bjössi að taka hálendisvakt og ég ákvað að gera túnfiskssalat án majoness og það var frábærlega gott. Ég vildi deila með ykkur uppskriftinni.
Sunday, July 8, 2012
Hafrakökur með döðlum
Eftir fæðinguna er um að gera að koma sér aftur í gott form og koma líkamanum í það ástand sem maður kýs helst.
Hingað til hef ég nær eingöngu breytt matarræðinu, engin sætindi nema á nammidögum, engir sætir gosdrykkir nema kannski á nammidögum og bara hollusta alla aðra daga. Ég hef ekki farið út í það að sleppa hveiti eða neinum matvörum, ég trúi ekki á þess konar matarræðisbreytingu. Ég trúi fremur á að allt sé gott í hófi. Og með þessum breytingum eru tæplega 8 kg farin síðan í upphafi júní (er reyndar með barn á brjósti sem hjálpar óneitanlega til).
En mig langar stundum í eitthvað í kaffitímanum og þvi bakaði ég þessar hafrakökur. Ég átti hafrakökuuppskrift en ég breytti henni nokkuð til þess að koma sem best til móts við mínar þarfir í dag. Vildi deila henni með ykkur því að mér finnst þær mjög góðar.
Friday, July 6, 2012
Auðir veggir úr sögunni!
Síðan vil ég endilega minna á það að Design Star er byrjað á Skjá Einum og þar fæðast oft skemmtilegar og fallegar hugmyndir. Þættirnir eru á þriðjudögum kl. 21:10.
Subscribe to:
Posts (Atom)